Síðast uppfært 08.02.2010

In English - coming soon 

Velkomin á heimasíðu
Deildar íslenska fjárhundsins - díf

 

 
Hundaræktarfélag Íslands - HRFÍ September 2009 Október 2009 Nóvember 2009 Desember 2009 Janúar 2010 Febrúar 2010

 

 Forsíða

 Um tegundina

 - Ræktunarmarkmið
 - Saga
 - Ræktunarstefna
 - Heilbrigði

 Upplýsingar

 - Stjórn og nefndir
 - Af fundum
 - Sýningar
 - Gönguplan
 - Til ræktenda
 - Ræktendur
 - Hvolpalisti (5)
 - Í leit að heimili

 Ýmislegt

 - Greinar
 - Myndir
 - Til sölu (3)
 - Eyðublöð
 - ISIC

 Fréttir

 - www.iseyjar.is
 - Gönguplan
 - Viðvörun frá Danm.
 - Skapgerðarmat fyrir 
      íslenska fjárhunda

 

Skráning á póstlista

Nafn:

Netfang    

   

Deild íslenska fjárhundsins

Deild íslenska fjárhundsins ber ábyrgð á verndun, ræktun og heilbrigði íslenska fjárhundsins í umboði stjórnar Hundaræktarfélags Íslands sem er aðili að alþjóðahundaræktarsamtökunum FCI.  

Fréttir & tilkynningar


  • Augnskoðun 27. og 28. febrúar 2010
    Dýralæknarnir Finn Bøserup og Jens Knudsen frá Danmörku augnskoða hunda í Reiðhöllinni í Víðidal dagana 27. og 28. febrúar, í tenglsum við alþjóðlega hundasýningu félagsins. Virkir félagsmenn geta látið skoða hundana eftir að þeir hafa verið sýndir.
    Nánari upplýsingar á vef HRFÍ, www.hrfi.is

  • Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 27.-28. febrúar 2010
    Skráningarfrestur er runnin út.
    Nánari upplýsingar á vef HRFÍ, www.hrfi.is.  

  • Grunur um arfgenga vaxandi sjónrýrnun, PRA, hjá íslenskum fjárhundi
    Grunur um augnsjúkdóminn PRA, eða arfgenga vaxandi sjónrýrnun, greindist í íslenskri tík í síðustu augnskoðun, í nóvember 2009. Þó þetta sé ekki staðfest tilfelli af PRA þá hefur HRFÍ sett umrædda tík, foreldra hennar og öll þeirra afkvæmi í ræktunarbann, í samræmi við reglugerð HRFÍ um skráningu í ættbók. Þessir hundar verða í ræktunarbanni þar til tíkin hefur verið augnskoðuð aftur og veltur framhaldið á niðurstöðu þeirrar skoðunar.  

    Á heimasíðu Dýralæknastofu Helgu Finnsdóttur má lesa grein um PRA þar sem finna má nánari upplýsingar um sjúkdóminn:
    http://www.dyralaeknir.com/2005/11/03/arfgeng-vaxandi-sjonuryrnun-pra/

  • Dagatal DÍF 2010
    Dagatal DÍF fyrir árið 2010 er komið út og hefur verið sent öllum skuldlausum félögum í DÍF. Þeir sem áhuga hafa á að eignast fleiri eintök er bent á dagatalsnefndina sem sér um sölu dagatalsins: 
       - Guðni Ágústsson - isey@hive.is 
       - Ágúst Ágústsson - dranga@simnet.is 
       - Elís Stefánsson - keilir@hive.is 

  • Happdrætti ISIC
    ISIC er samstarfsvettvangur landa um málefni íslenska fjárhundsins en til fjáröflunar er efnt til happdrættis með ýmsum veglegum vinningum. 

    Hægt er að kaupa miða til 1. júní 2010 en athugið að einungis eru 200 miðað í boði um allan heim þ.a. fyrstur kemur fyrstur fær! 
    Hver miði kostar 10 Evrur en hægt er að nálgast miða hjá Guðna (isey@hive.is). 
    Dregið verður í happdrættinu á Heimssýningunni í Danmörku 2010. 
    Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu ISIC: http://www.icelanddog.org/sider/lottery.html

  • Heimssýningin 2009 í Bradislava
    Íslenski fjárhundurinn var sýndur 8. október en tegundina dæmdi Espen Engh frá Noregi. Best hundur tegundar og Worldwinner 2009 var Gjósku Ása en hún kemur úr ræktun Örnu Rúnarsdóttur og er í eigu Surtsey og Ishundur ræktana í Danmörku. Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni og World-junior-winner 2009 er jafnframt fæddur á Íslandi, Arnarstaða Kiljan sem kemur úr ræktun Guðríðar Valgeirsdóttur og er í eigu Surtsey ræktunar. 

  • Stigahæstu hundur ársins! - ISW-09
    Glæsilegur árangur ISCH Arnarstaða Rektors á hundasýningum HRFÍ á árinu gerði hann að stigahæsta sýningarhundi Íslands árið 2009 og þar með ávann hann sér titilinn ISW-09!!! 

ISW-09 ISCH Arnarstaða Rektor


BOB ISCH Arnarstaða Rektor og BOS ISCH Arnarstaða Romsa ásamt sýnendum og dómara


  • Dagatal DÍF 2010
    Dagatalsnefnd DÍF auglýsir eftir myndum í dagatal næsta árs. Dagatalsnefnd áskilur sér rétt til að velja úr innsendum myndum. Myndirnar þurfa að sýna íslenska fjárhunda, vera á stafrænu formi og í góðri upplausn. Einnig er hægt að kaupa auglýsingar í dagatalið.
    Myndirnar er hægt að senda beint til nefndarmanna sem gefa einnig allar nánari upplýsingar: 
        - Ágúst Ágústsson - dranga@simnet.is
        - Elís E. Stefánsson - keilir@hive.is
        - Guðni Ágústsson - isey@hive.is 

  • Afmælissýningar HRFÍ í reiðhöllinni Víðidal - 40 ára afmæli Hundaræktarfélags Íslands
    Reykjavík 22.-.23. ágúst 2009

    BOB ISCH Arnarstaða Rektor og BOS ISCH Gerplu Dala Drífa

    Laugardaginn 22. ágúst dæmdi Sigríður Pétursdóttir íslenska fjárhundinn en af þeim 60 sem voru skráðir til leiks varð ISCH Arnarstaða Rektor hlutskarpastur. Hann varð besti hundur tegundar (BOB), vann tegundahóp 5 og lenti í 3. sæti í vali um besta hund sýningar! Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni var ISCH Gerplu Dala Drífa

    BOB ISCH Arnarstaða Rektor og BOS ISCH Arnarstaða Romsa

    Sunnudaginn 23. ágúst dæmdi Guðrún R. Guðjohnsen íslenska fjárhundinn en af þeim 57 hundum sem skráðir voru til leiks varð ISCH Arnarstaða Rektor hlutskarpastur. Hann varð besti hundur tegundar (BOB), vann tegundahóp 5 og lenti í 2. sæti í vali um besta hund sýningar! Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni varð ISCH Arnarstaða Romsa

  • Sumarsýning HRFÍ 27. - 28. júní 2009
    22 íslenskir fjárhundar voru skráðir til leiks en tegundin var dæmd af Guy Jeavons frá Kanada.  
    Besti íslenski fjárhundurinn var Arnarstaða Rektor en hann varð jafnframt í 2. sæti í Grúppu 5. Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni var Stefsstells Salka Spesía. Besta ungviði tegundar (4-6 mánaða) var Arnarstaða Skrumba en hún gerði sér lítið fyrir og varð 2. Besti hvolpur sýningar á laugardegi! 

BOB Arnarstaða Rektor og BOS Stefsstells Salka Spesía ásamt sýnendum og dómara

BOB Arnarstaða Rektor og BOS Stefsstells Salka Spesía
ásamt sýnendum og dómara


  • Póstlisti DÍF
    Vakin er athygli á búið er að útbúa póstlista fyrir DÍF og er hægt að skrá sig á listann hér til hliðar á síðunni. Á listann munu berast tilkynningar frá deildinni eftir því sem við á en um leið og listinn var opnaður var netfang deildarinnar virkjað, dif@dif.is

  • Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 28. febrúar - 1. mars 2009!
    42 íslenskir fjárhundar eru skráðir til leiks en tegundin var dæmd af Hans  Van Den Berg frá Hollandi

    Besti íslenski fjárhundurinn var Arnarstaða Rektor en hann varð jafnframt í 2. sæti í Grúppu 5. Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni var Kirkjufells Kringla. Besta ungviði tegundar (4-6 mánaða) var Arnarstaða Skutla. Besti hvolpur tegundar (6-9 mánaða) var Stefsstells Salka Spesía en hún gerði sér lítið fyrir og varð 3. Besti hvolpur sýningar á sunnudegi! Besti öldungur tegundar var ISCH Gjósku Vaskur og Besta par tegundar voru ISCH Gjósku Vaskur og ISCH Gerplu Dala Drífa.  
    BOB Arnarstaða Rektor ásamt sýnanda og dómara Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni (BIM9 Kirkjufells Kringla ásamt sýnanda sýnum, sem jafnframt er eigandi og ræktandi
    Bestu hundur tegundar og 2. sæti
    í Grúppu 5:
    Arnarstaða Rektor
    Besti hundur tegundar af gagnstæðu 
    kyni:
    Kirkjufells Kringla

  • Rannsókn á starblindu hjá íslenska fjárhundinum
    Fyrirhuguð er rannsókn á arfgenginni starblindu (cataract) hjá íslenska fjárhundinum. Fulltrúar Icelandic Sheepdog Association of America (ISAA) settu sig í samband við fyrirtæki sem hlaut styrk til að rannsaka starblindu í Norrænum hundategundum og koma því við að íslenski fjárhundurinn mun taka þátt í rannsókninni.

    Fyrirtækið hefur náð að einangra erfðamörk (e. genetic marker) fyrir arfgengri starblindu í nokkrum öðrum hundategundum og verður byrjað að kanna hvort sömu erfðamörk finnist í stofni íslenska fjárhundsins. Ef ekki verður erfðamengi stofnsins kortlagt og reynt að einangra erfðamörk fyrir starblindu í hundunum okkar.

    Hlutfall íslenskra fjárhunda með arfgenga starblindu er mjög lágt og því verða tekin sýni frá hundum í Ameríku, Íslandi og í öðrum Evrópulöndum. Tekin verða sýni frá allt að 75 íslenskum fjárhundum á Íslandi, eigendum þeirra algjörlega að kostnaðarlausu.

    Útbúinn hefur verið listi yfir hunda sem reynt verður að fá sýni frá og verður haft samband við eigendur þeirra á næstu vikum. Allt eru þetta hundar sem hafa verið augnskoðaðir á vegum HRFÍ en á listanum eru:
    - Hundar með arfgenga starblindu
    - Foreldrar þeirra og afkvæmi ef einhver eru
    - Systkini hunda með arfgenga starblindu
    - Afar og ömmur hunda með arfgenga starblindu
    - Aðrir fullorðnir hundar með heilbrigð augu

    Ef tekst að greina eða einangra erfðamörk fyrir arfgenga starblindu hjá íslenska fjárhundinum munu niðurstöður einstakra hunda einungis verða sendar beint til skráðs eiganda og einungis verða aðgengilegar honum.

    Vonumst við til að fólk taki taki þátt í rannsókninni og hjálpi þannig til við greiningu á stöðu arfgengrar starblindu í stofni íslenska fjárhundsins.

  • Þegar hundar falla frá ....
    Af gefnu tilefni viljum við minna fólk á að láta vita á skrifstofu HRFÍ þegar hundar falla frá


  • Dagatal DÍF 2009
    Dagatalsnefndin auglýsir eftir myndum af íslenskum fjárhundum fyrir dagatal DÍF 2009. Myndirnar þurfa að vera á stafrænu formi og í góðri upplausn en nefndin mun velja úr innsendum myndum. 

    Nánari upplýsingar hjá nefndarmönnum: 
    - Ágúst framrudan@simnet.is
    - Elís keilir@hive.is
    - Guðni isey@hive.is 

  • Heimssýningin 2008!WW-08 Surtsey´s Fafnir
    Alls voru 20.674 hundar af 342 hundategundum skráðar til leiks og því var mikið að sjá alla sýningardagana. Þónokkrar þessarra tegunda höfðu aldrei verið sýndar í Svíþjóð áður en hjá Sænska Hundaræktarfélaginu eru skráðar 316 hundategundir. 

    WW-08 Gjósku Ása52 íslenskir fjárhundar voru skráðir á heimssýninguna en þjóðarhundurinn dæmdi enginn annar en heiðursfélagi HRFÍ, Guðrún R. Guðjohnsen. Besti íslenski fjárhundurinn og WorldWinner 2008 var DE&VDHCH DKUCH INTUCH PLCH SUCH WW-06 WW-08 Surtsey´s Fafnir en hann er ræktaður í Danmörku. Besta íslenska fjárhundstíkin fær sömuleiðis WorldWinner titil en hún heitir DKUCH INTCH KLBCH KBHV06 KLBV06 DKKV07 DKJUBV07 SUCH WW-08 Gjósku Ása. Hún er fædd á Íslandi, ræktuð af Örnu Rúnarsdóttur en búsett í Danmörku. Annar hundur ræktaður á Íslandi gerði það sömuleiðis gott á heimssýningunni en Arnarstaða Hjálmur fékk sænskt meistarastig. Hjálmur býr nú á Álandseyjum og er úr ræktun Guðríðar Valgeirsdóttur. 

    Úrslit íslenska fjárhundsins á heimssýningunni má sjá með því að smella hér. 

    Í tengslum við heimssýninguna var einnig haldin sérsýning fyrir íslenska fjárhundinn. Þar dæmdi Per-Erik Wallin frá Svíþjóð og voru 75 hundar skráðir til leiks. Besti hundur þessarar sýningar var fæddur á Íslandi, ISCH DKCH SUCH NORDUCH Kersins Orri, en hann býr nú í Danmörku. Ræktandi Orra er Helga Gústavsdóttir.  

    Arnarstaða Hjálmur Kersins Orri

BHT1 Bjarkarkots Dimma Nótt og BHT2 Íslandssólar Grímur ásamt sýnendum og dómara

Smellið hér til að sjá myndir og úrslit!


  • Okkur vantar myndir! 
    Nú eru komnar myndir af um 400 íslenskum fjárhundum á www.iseyjar.is en gaman væri að fá fleiri! Þeir sem eiga myndir af hundum sem engin mynd er af á síðunni eru hvattir til að senda þær til  Guðna á netfangið dif@hive.is. Stafrænar myndir þurfa helst að vera í nokkuð góðri upplausn en einnig má senda Guðna myndir á pappír sem hann skannar þá inn og sendir eiganda til baka. 

Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands 1.-2. mars 2008 í Reiðhöllinni í Víðidal 
Stefsstells Skrúður ásamt sýnanda og dómaranum sem dæmdi úrslit í Tegundahópi 5

42 íslenskir fjárhundar voru skráðir til leiks en dómari var Nils Molin frá Svíþjóð. 
Besti hundur tegundar var Stefsstells Skrúður en hann vann jafnframt Tegundahóp 5 og varð 4. Besti hundur sýningar!.
Úrslit og myndir af sýndum íslenskum hundum eru komnar á vefinn!

 


Tvær deildarsýningar DÍF 19. og 20. janúar 2008 í reiðskemmu Gusts í Kópavogi!

Úrslit beggja sýninga og myndir af öllum sýndum hundum eru komin á síðuna!


Deildarsýning DÍF 20. janúar 2008
75 íslenskir fjárhundar voru skráðir til leiks en dómari sýningar var Sigríður Pétursdóttir
Smellið á myndina til að sjá hana stærri!Besti hundur sýningar var ISCH Arnarstaða Romsa og Annar besti hundur sýningar var Kersins Orri

Kersins Orri fékk stig til íslensks meistara og hefur nú öðlast rétt til að sækja um titilinn ISCH. Kirkjufells Kringla fékk sömuleiðis íslenskt meistarastig og þarf nú einungis eitt til viðbótar til að geta sótt um sama titil. 

 

Deildarsýning DÍF 19. janúar 2008 
67 íslenskir fjárhundar voru skráðir til leiks en dómari sýningarinnar var Kenneth Edh frá Svíþjóð
Smellið á myndina til að sjá hana stærri!Besti hundur sýningar var Kirkjufells Kringla og Annar besti hundur sýningar var Íslandssólar Grímur

Kirkjufells Kringla og Íslandssólar Grímur fengu bæði sitt fyrsta stig til íslensks meistara, ISCH, á þessari sýningu. 


  • Ath. Nýjar sýningareglur tóku gildi hjá Hundaræktarfélagi Íslands 1. janúar 2008! Nánar ...

  • Breyting á ræktunarreglum fyrir íslenskan fjárhund. 
    Breytingin tekur gildi 01.06.2007. 
    Gildistími augnskoðunar hjá íslenska fjárhundinum er 12 mánuðir en séu hundar augnskoðaðir eftir þriggja ára aldur gildir augnskoðunin í 26 mánuði. 

  • Per-Erik Sundgren á fyrirlestinum 12.05.2007Dr. Per-Erik Sundgren - fyrirlestur 12. maí 2007!
    Efni fyrirlestrarins var hundarækt, ræktun lítilla stofna og síðast en ekki síst íslenski fjárhundurinn og staða og framtíðarhorfur í ræktun hans. Hér var um að ræða einstakt tækifæri sem enginn áhugamaður um hundarækt og íslenska fjárhundinn hefði átt að láta fram hjá sér fara. Um 50 félagar í Hundaræktarfélagi Íslands og eða DÍF sóttu fyrirlesturinn en komar eru myndir frá fyrirlestrinum inn á vefinn. Nánar ...

  • Fundargerðarbækur DÍF frá upphafi innbundnar!
    Nánar ...

  • Á  www.iseyjar.is er að finna gagnagrunn yfir alla íslenska fjárhunda sem hafa verið skráðir hjá Hundaræktarfélagi Íslands frá því skráningar hófust. Hægt er að leita að einstökum hundum hvort heldur er eftir nafni eða ættbókarnúmeri, skoða bakgrunn hundanna, niðurstöður mjaðaskoðana (HD), afkvæmalista og nafn eiganda!

  • Viðvörun frá Danmörku
    Islandsk Fårhundeklubb í Danmörku og danska hundaræktarfélagið hafa beðið DÍF að vara meðlimi sína við nokkrum ræktendum sem selja hvolpa án FCI-viðurkenndra ættbóka. Nánar...

    19.05.2006.

  • Skapgerðarmat
    Ákveðið hefur verið að gera átak í skapgerðarmati á íslenskum fjárhundum á Íslandi og vill stjórn deildar íslenska fjárhundsins því hvetja alla eigendur íslenskra hunda á viðeigandi aldri að mæta með hundana sína í skapgerðarmat á vegum HRFÍ. Nánar...
    03.05.2006. 
 

________________________________________________________________________
Best er að skoða þessar síður í 1024x768 pixels upplausn. Umsjónarmaður vefs.
© 2006-2010 Deild íslenska fjárhundsins. Afritun óheimil án leyfis. Allur réttur áskilin