Fundargerðir


03.09.2021

 

Stjórnarfundur DÍF  -Skyrgerðinni, Hveragerði kl.20:00

Mættir eru :

Bergrós Gísladóttir, Helga Andrésdóttir, Sóley Ragna Ragnarsdóttir og Stefanía Sigurðardóttir.  

Malin Persson boðaði forföll.

 

Rætt var um deildarsýngu díf 27.06.2021 sl..  Stjórn vill þakka aðal styrktaraðila okkar, Dýrheimar fyrir verðlaun og alla hjálpsemina við uppsetningu sýningarinnar, einnig viljum við þakka K9 fyrir gjafapokana, Helgu Andrésdóttur fyrir rósetturnar, Ágústi Ágústssyni ljósmyndara og Fáki fyrir lán á túninu undir sýninguna.

Ákveðin hefur verið dagsetning 16. sept. nk. fyrir matarboð stjórnar með dómara deildarsýningarinnar og þeim sem störfuðu með okkur á deildarsýningunni. 

Dífganga er á döfinni seinna í haust, rætt um staði og þá ákveðið fljótlega.

Rætt var um dagatal díf, hvað prent- og póstkostnaður hefur hækkað mikið síðustu árin og framtíð dagatalsins, prentað eða stafrænt.  Ákveðið að leita tilboða í prentsmiðjum m.t.t. kostnaðar við að prenta næsta dagatal.

Rætt var um heimasíðu díf. Reynt var að fá styrk í fyrra til að laga og bæta heimasíðuna en það gekk ekki.

Rætt var um hugmynd að hafa “sölusíða” á heimasíðu díf og hvort og hvernig það yrði útfært.

 

Fundi slitið kl. 22:00

 

Helga Andrésdóttir ritari